Arranging Things
Öll viljum við að heimili okkar líti vel út og endurspegli okkar innri manneskju. Nú er það enn auðveldara með hjálp Colin King og hans fyrstu bók. Í gegnum síður bókarinnar munu lesendur Arranging Things komast að því hvernig Colin töfrar fram útstillingar á sófaborð, bókahillur, náttborð, gluggakistur og fleira.
Með myndaþáttum gerir Colin King upp sköpunarferli sitt með hugleiðingum sínum hvað varðar mælikvarða, hlutföll, litapallettur og áferðir. Bókin snýst ekki um að kaupa nýja hluti, heldur frekar að dusta rykið af gömlum munum og sjá þá í nýju ljósi. Stílisering er í augum hans myndlíking fyrir lífið sjálft og hæfileiki sem þarf að æfa yfir lengri tíma.
Colin King er vinsæll stílisti fyrir mörg af leiðandi vörumerkjum og útgáfur heims og vinnur fyrir tímaritin Architectural Digest, T, Ark og Rum. Hann vinnur einnig reglulega með West Elm, Anthropologie, Zara Home og Crate & Barrel ásamt því að hanna eigin vörulínur.
— Stærð: 24×2,8×27,5 cm
— 240 blaðsíður
— Kápa: Harðspjalda
— Tungumál: Enska
— ISBN: 9780847899104