Dagatal fyrir árið 2024 eftir Theodóru Alfreðsdóttur.
Dagatal 2024 er ný og skemmtileg viðbót í flóru dagatala, sem bætir sjónrænni upplifun við það að halda utan um tíma. Dagatalið er innblásið af spjalli Theodóru við föður sinn en þau upplifa bæði samakynjun, þar sem þau sjá liti og form þegar þau hugsa um mánuði — þetta dagatal byggir á slíkum upplifunum.
Fjórir pinnar eru festir á vegg, og 13 síður settar á tvo þeirra. Síðurnar hafa allar einn mánuð ársins á sér, en þegar mánuðurinn er liðinn er sú síða færð yfir á hina tvo pinnana þar sem hægt og rólega byggist upp listaverk sem er fullklárað í enda árs — sjónrænt ferðalag í gegn um tíma og minningar.
Í enda árs er það svo þitt að ákveða uppsetninguna; viltu nota þá samsetningu sem Theodóra hannaði eða viltu jafnvel skipta síðunum upp og búa til tvö listaverk sem snerta við þér?
Dagatalið er frábær jólagjöf, en það blandar saman notagildi, sjálfbærni og næmni í einstaka upplifun. Leyfðu tímanum að skapa nýtt verk.
Ísland — Bretland
— Stærð: 21x26,5 cm
— Efni: 2mm þykkur hvítur krossviður