Líkamsolían frá Hvammsvík gefur húðinni djúpan raka og skilur við hana mjúka og endurnærða. Olían inniheldur möndluolíu, apríkósukjarnaolíu og jojoba sem stuðla að heilbrigði og jafnvægi húðarinnar. Hún hefur einkennandi ilm Hvammsvíkur, hreinan og frískandi, með grunntónum af melgresi, mosa, krækiberjalyngi og þangi og kemur í þægilegri 100 ml flösku.
Baðvörulínan frá Hvammsvík er unnin í sátt við náttúruna með það að markmiði að upphefja róandi eiginleika hennar í gegnum lyktar- og snertiskyn. Línan er þróuð, unnin og framleidd á Íslandi úr handtíndu og staðbundnu hráefni frá Hvammsvík.
Hvammsvík — Ísland
— Stærð: 100 ml
— Vörurnar eru lífrænar, vegan og ekki prófaðar á dýrum. Þær eru einnig eiturefnalausar og án parabena, súlfata og sílikons. Línan er þróuð af Grímu Björu Thorarensen, meðeiganda Hvammsvíkur, og Sonju Bent, eiganda Nordic Angan.
— Hentar öllum húðgerðum.
Prunus Amygdalus Dulcis (almond oil)*, (meadowfoamseed oil)*, Prunus armeniaca (apricot kernel oil)*, Simmondsia Chinensis (jojoba oil)**, vitamin e, Seaweed*** (Fucus vesiculosus & Laminaria digitata), Lyme grass*** (Leymus arenarius), Black crowberry*** (Empetrum nigrum), Moss****(Racomitrium lanuginosum), European larch*****(Larix decidua), Linalyl acetate***, Ionone beta*******
*cold pressed ** organic ***Absolute ****Extract *****Essential oil ******Natural isolate