Wakaba Matcha er framleitt úr sérvöldum telaufum frá Yame í Fukoka, Japan, sem skýlt var frá sólu síðustu 20 daga fyrir tínslu þeirra. Þetta ferli hægir á vexti þeirra og þéttir blaðgrænu sem eykur amínósýrur og önnur næringarefni í laufunum og skilar fallegum og djúpum grænum lit með auknum heilsufarslegum ávinningi. En engin önnur fæðutegund inniheldur jafn mikið af andoxunarefnum.
Eftir tínslu eru telaufin möluð í fínt duft með steini til að draga úr oxun. Þar sem mölun með steini getur komið hita í laufin er það gert afar hægt, eða um 30g á klukkustund.
Yame svæðið er talið vera framtíð matcha framleiðslu og Wakaba gæti vel táknað allt það besta sem héraðið hefur fram á að færa; ótrúlegur ilmur, mjúkur kakókenndur hnetukeimur og frábært verð miðað við gæði.
Sjarmi Wakaba felst í hversu fjölbreytt það er og hversu auðvelt er að hella upp á það. Hvort sem þú vilt mæla teið og vatnið nákvæmlega, drekka það heitt eða kalt eða jafnvel í latte — þá bragðast það einfaldlega vel.
Yame, Fukuoka, Japan
Mælið um 2g af Matcha með chashaku og sigtið í teskál. Blandið við það 65g af 80°C heitu vatni og þeytið teið með chasen í um 15 sek., eða þar til fínni froðu hefur verið náð.
Frekari upplýsingar má finna hér.
— Innihald: Grænt te
— Magn: 20g
— Geymið dósina í kæli eftir opnun. Einnig getur reynst gott að setja dósina í margnota poka áður en hún er sett inn í ísskáp til að varna því að teið dragi í sig ilm úr ísskápnum.