Symmetry Easy Chair
Verð
259.990 kr
Verð
per
Þessi vara er í sérpöntun. Afhendingartími 8–10 vikur.
Symmetry Easy Chair er ein nýjasta vara FRAMA og var kynnt á hönnunarvikunni í Kaupmannahöfn í júní 2025. Stóllinn er lágur og breiður og er hannaður með hvíld og rólega íhugun í huga. Stóllinn einkennist af ofinni setu, en hún er vísun í hefðbundin dönsk og skandinavísk húsgögn.
Frama er þverfaglegt sköpunarhús sem býr til vörur sem hvetja til núvitundar og örva skynfærin. Merkið leggur áherslu á náttúruleg efni, einföld form og gæði án málamiðlana — þannig nær það á einstakan hátt að tengja það huglæga við það praktíska sem skilar sér í beinskeittri fagurfræði.
Kaupmannahöfn, Danmörk
— Stærð: H67,5×B66,2×D58 cm
— Efni: Lakkaður askur
Mikado | Hafnartorgi