Sjampóið frá Hvammsvík hreinsar hárið vel og veitir því raka án þess að þurrka það eða strípa af náttúruleum olíum. Formúlan er mild og sérhönnuð til þess að styrkja hárið án þess að þyngja það. Það hefur einkennandi ilm Hvammsvíkur, hreinan og frískandi, með grunntónum af melgresi, mosa, krækiberjalyngi og þangi og kemur í þægilegri 500 ml flösku.
Baðvörulínan frá Hvammsvík er unnin í sátt við náttúruna með það að markmiði að upphefja róandi eiginleika hennar í gegnum lyktar- og snertiskyn. Línan er þróuð, unnin og framleidd á Íslandi úr handtíndu og staðbundnu hráefni frá Hvammsvík.
Hvammsvík — Ísland
— Stærð: 500 ml
— Vörurnar eru lífrænar, vegan og ekki prófaðar á dýrum. Þær eru einnig eiturefnalausar og án parabena, súlfata og sílikons. Línan er þróuð af Grímu Björu Thorarensen, meðeiganda Hvammsvíkur, og Sonju Bent, eiganda Nordic Angan.
— Hentar öllum húðgerðum.
Water, cocamidopropyl betaine, sodium lauroyl sarcosinate, sodium cocoamphoacetate, hydrogenated glyceryl palmate, coco-glucoside, glyceryl oleate, hydroxypropyltrimonium chloride, phenoxyethanol, capryl glycol, Behenamidopropyl dimethylamine, panthenol, jojoba oil, Seaweed*** (Fucus vesiculosus & Laminaria digitata), Lyme grass*** (Leymus arenarius), Black crowberry*** (Empetrum nigrum), Moss****(Racomitrium lanuginosum), European larch*****(Larix decidua), Linalyl acetate***, Ionone beta*******.
*cold pressed ** organic ***Absolute ****Extract *****Essential oil ******Natural isolate