Resonant・Extrait de Parfum・Áfylling
Resonant er ferskur og viðarkenndur ilmur frá Oddity sem blandaður var David Chieze. Áfyllingin kemur án tappa, en hvert hefðbundið glas kemur með handgerðum tappa sem nota má á áfyllingarnar.
Tilfinningin sem ilmvatnið vekur upp er köld og minnir á garð fullan af sítrusávöxtum. Þurr viður, málmur og musk.
Toppur — Yuzu・Mandarína・Bergamot・Engifer・Petit Grain
Hjarta — Köld málmnóta
Grunnur — Musk・Guaiac-viður・Ambergris
Oddity er nútímalegt ilmvatnshús stofnað í Hong Kong sem leitt er af þverfaglegum hópi hönnuða. Merkið hefur unnið til fjölda virtra verðlauna frá stofnun þess árið 2021, en öll ilmvötn þeirra eru framleidd í litlum skömmtum þar sem notast er við sjaldgæf hráefni. Það gefur ilmum þeirra einkennandi og ferskt yfirbragð.
Hong Kong
— Stærð: 50 ml
— Ilmvatnið hentar öllum kynjum.
— Spreyið á háls og úlnlið eftir þörfum.
— Haldið ilmvatninu frá augum, munni, börnum og dýrum.