Nestispoki・Breiður・Svartur
Poki frá SIWA í formi gamaldags innkaupapoka. Þessi stærri gerð hentar vel til þess að geyma gögn í A4 stærð og allt upp í litlar regnhlífar. Sé vilji fyrir því að geyma minni hluti líkt og síma, veski og annað smálegt sem bera þarf í amstri dagsins, mælum við með stærri gerðinni sem finna má hér.
Smellur eru á ofanverðum pokanum svo hægt sé að loka honum örugglega. Pokinn er handgerður úr naoron, sem unnið er úr sérstakri blöndu af viðarkvoðu og gervitrefjum, er vatnsheldur, afar sterkur og verður mýkri með notkun.
SIWA er samstarfsverkefni japanska pappírsframleiðandans ONAO og hins virta iðnhönnuðar, Fukasawa Naoto. ONAO er staðsett nálægt Fuji í landbúnaðarbænum Ichikawa Misato, á svæði sem státar af 1.000 ára sögu washi-pappírsgerðar. Þau hafa, síðan árið 1974, fullkomnað tæknina við framleiðslu washi-pappírs og í kjölfarið þróað leið til að búa til efni sem bæði er vatnshelt og sterkt, naoron, sem unnið er með fornri japanskri pappírsframleiðslutækni, washi-suki.
Vörurnar frá SWIA eru handgerðar úr naoron, sem unnið er úr sérstakri blöndu af viðarkvoðu og gervitrefjum og þróað með því að nota forna japanska pappírsframleiðslutækni, washi-suki.
SIWA notast við tvær tegundir af naoron, mjúkt og RPF naoron. Mjúkt naoron samanstendur af blöndu af viðarkvoðu og polyolefin sem gerir það mjúkt og sveigjanlegt. RPF naoron er framleitt með því að bæta endurunnum pólýestertrefjum úr notuðum plastflöskum og textílvörum í pappírsmassann. Báðar tegundir Naoron hafa áberandi áferð pappírs en eru harðgerðar, léttar og vatnsheldar. Naoron gefur ekki frá sér skaðlegar gufur við brennslu.
Ichikawamisato, Japan
— Stærð: 31,5×31,5×70 cm
— Þyngd: 50 g.
— Efni: Naoron-pappaefni.
— Vinsamlegast athugið að dökkir litir geta dofnað með tímanum.
— Vinsamlegast athugið að ef blautir hlutir eru lengi í snertingu við naoron getur það leitt til breytinga á lit vörunnar.
— Þvo skal pokann varlega í höndunum með mjúkum hreyfingum.
— Eftir þvott skal ekki vinda heldur þurrka af með rökum klút og leyfa svo pokanum að þorna náttúrulega.
— Einnig er hægt að leggja pokann á handklæði til að fjarlægja mesta rakann og leyfa honum svo að þorna náttúrulega.
— Ekki má strauja, nota hárþurrku eða þurrkara. Forðast skal að pokinn komist í snertingu við heita hluti.