Lhasa Rose 1924 sækir innblástur í ævintýralegt ferðalag Alexöndru David-Néel til Lhasa fyrir rúmri öld. Fínleg rós blandast tíbetsku reykelsi, bergamoi og geranium, á meðan sandalviður og oud gefa ilminum hlýjan og djúpan grunn. Rómantískur og dularfullur ilmur sem fangar andrúmsloft hinnar fornu borgar Lhasa.
Toppur — Bergamot・Geranium・Pink pepper
Hjarta — Rose Centifolia・Rose Damascene・Incense・Ambergris
Grunnur — Indian sandalwood・Oud・Musk
París, Frakkland
— Stærð: 50 ml
— 90% náttúruleg hráefni.
— Ilmvatnið hentar öllum kynjum.
— Spreyið á háls og úlnlið eftir þörfum.
— Haldið ilmvatninu frá augum, munni, börnum og dýrum.
Í Himalajafjöllunum eru þúsundir stórkostlegra náttúruauðlinda, sem fullar eru af óvenjulegum plöntum og lyktareinkennum. Ilmvatnslína hima jomo er innblásin af náttúrufegurð Himalaya og jafnvæginu á milli ríkrar menningar, landslags og hefðum svæðisins.hima jomo var stofnað árið 2020 í París af vinahópi sem deilir sama áhuga á náttúru og menningu Himalaya. Nafn fyrirtækisins er samsetning tveggja orða sem eru vörumerkinu kær: „hima“ fyrir „Himalaya“ og „jomo“ sem þýðir „Heilög móðir“ á tíbetsku.
Ilmvötn hima jomo eru innblásin af fjölbreyttu náttúrulegu vistkerfi Himalayafjallanna og eru handunnin af kostgæfni í Grasse í Frakklandi. Ilmvötnin innihalda sjaldgæf innihaldsefni sem finnast eingöngu í Himalayafjöllunum og taka þau sem bera ilmina í ferðalag til óbyggða þessa himneska svæðis. Ilmirnir eru gerðir úr 95–99% af náttúrulegum og lífrænum hráefnum sem hima jomo fær frá Maison Robertet, frönskum ilmframleiðanda sem hefur sérhæft sig í sjálfbærum og náttúrulegum hráefnum með fullan rekjanleika frá árinu 1850.
Öll vörulínan er í endurvinnanlegum umbúðum og engar vörur hafa verið prófaðar á dýrum. hima jomo gera einnig sitt besta við að hafa sjálfbærni og verndun náttúrunnar að leiðarljósi og gefa 1 Evru af hverju seldu glasi til WWF sem berjast fyrir verndun Himalaya-svæðisins.