Skál fyrir japanskar Ikebana-blómaskreytingar, framleidd í Mizunami í Gifu-héraði Japans. Skálin er í hefðbundnum mino-leirkerastíl, sem þróaður var á svæðinu fyrir meira en 1300 árum. Mino-leirmunahefðin er verndað listform sem einkennist af nýstárlegum aðferðum í glerjun leirmuna og hefur lengi verið elskuð af japönsku þjóðinni.
Í gegnum sína löngu sögu hefur japanska blómaskreytingalistin betur þekkt sem Ikebana, þróast og aðlagast tíðaranda hverju sinni án þess þó að missa sjónar á hefðbundnum gildum listformsins.
Ikebana er partur af kadō 華道, einum af þremur klassískum fágunarlistum Japans, sem myndi útleggjast sem „The Way of Flowers“ á ensku. Hinar tvær fágunarlistir Japans eru kōdō 香道 (The Way of Incense) og chadō 茶道 (The Way of Tea). Saman varðveita þessar listir hefðir og minningar fyrri tíma Japans.
Sögu Ikebana 剣山 má rekja aftur til 6. aldar þegar kínverskir trúboðar komu til Japans með búddíska helgisiði sem fólu í sér að færa Búdda blóm. Fyrsti blómaskreytingaskólinn í Japan, Ikenobō, var svo stofnaður af Ono no Imoko í upphafi 7. aldar. Aðrir helstu skólar í listinni eru Ko (Koryū), Ohara og Sogetsū.
Gifu, Japan
— Stærð: 125×125×48 mm
— Þyngd: 252 g
— Efni: Keramik