Hitaplattinn frá FUTAGAMI setur svip sinn á hvert eldhús. Hægt er að hota hann undir heita potta, pönnur eða mót eða einfaldlega sem skrautmun.
FUTAGAMI er japanskt lífsstílsmerki sem framleiðir vörur úr látúni. Það var stofnað árið 2009, með hönnuðinum Masanori Oji í fararbroddi, í Takaoka, Toyama í Japan. Bærinn Takaoka er vel þekktur í Japan og á yfir 400 ára sögu af framleiðslu hágæða muna úr látúni (e. brass).
Látún hefur langa sögu í Asíu og hefur samkvæmt hefðinni verið notað í altarisbúnað og aðra muni sem gegna trúarlegum tilgangi. Öldrun, eða tjörnun, látúnsins er eitt af einkennum þess og hefur lengi verið vel liðið af Japönum sem kunna að meta það einstaka og persónulega yfirbragð sem tjörnunin gefur því. Með réttri umhirðu og umönnun munu vörurnar frá FUTAGAMI endast í áratugi.
Takaoka, Toyama, Japan
— Efni: Látún (e. brass)
— Stærð: Ø130×12 mm
— Þyngd: 260 g
Ólakkað látún mun tjarna með tíma og notkun, það er algjörlega skaðlaust. Í okkar augum er þetta fallegt ferli sem gefur hverjum hlut einstakt og persónulegt yfirbragð en ef eigandinn kýs að halda í upprunalegan gljáa er einfaldlega hægt að þurrka af hlutnum með koparhreinsi.