Handsápa・Áfylling・Apothecary・500 ml
Áfylling á Apothecary handsápuna frá FRAMA. Kemur í 500 ml einingu og án pumpu.
Apothecary handsápan frá FRAMA er unnin úr náttúrulegum og lífrænum hráefnum. Hún ilmar af einkennisilm St. Pauls Apothecary línu FRAMA, með nótum af sandalvið, sedrusvið og ylang ylang. Sápan er létt og froðukennd og hreinsar og endurnærir húðina og styður þannig við heilbrigði hennar.
Nótur — Sandalviður・Sedrusviður・Ylang Ylang
Ilmur — Sítrus・Blóm・Viður
Sandalviður er klassískur austurlenskur, hlýr og viðarkenndur tónn sem notaður hefur verið í musterum búddista öldum saman við hugleiðslu. Sedrusviður er þekktur fyrir jarðtengingu og hefur róandi áhrif á skap. Ylang ylang er djúpur og ríkur ilmur með örlítið af sætum, grænum og blómlegum nótum sem hefur lengi verið þekktur fyrir að róa kvíða og stuðla að slökun.
Kaupmannahöfn, Danmörk
— Stærð: 500 ml
— Hentar öllum húðgerðum.
— Handsápan er unnin úr náttúrulegum efnum, er vegan og hefur ekki verið prófuð á dýrum.