A3 dagatal á óhúðuðum pappír með nýrri teikningu fyrir hvern mánuð, sem má klippa út og nota áfram. Merkt hátíðisdögum, jafndægrum, fullu tungli, Gvendardegi og fleiri góðum dögum.
Ingibjörg Berglind er grafískur hönnuður og teiknari. Ingibjörg útskrifaðist úr Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2014 og rekur hönnunarstofuna Cave canem. Myndirnar urðu til í skemmtilegu samstarfi Ingibjargar Berglindar og Unnar Stellu (Start Studio) þar sem hvor teiknaði sig inn í heim hinnar, hnýtti sig inn í sögu sem var þegar hafin og hélt henni áfram á sinn hátt. Þannig blandaðist saman lita- og myndmál beggja, mánuð eftir mánuð, og úr því samtali spruttu litlir ævintýraheimar, sumir kunnuglegir, aðrir svolítið skrítnir, en allir skemmtilegir.
Reykjavík, Ísland
— Stærð: A3, 420×297 mm