Alcove kertastjakinn er nýjasta vara Casegoods og er innblásinn af útskotum hefðbundinna indverskra bygginga, þar sem innfellur í veggi komu í veg fyrir að kerti slokknuðu þegar það tók að blása úti.
Casegoods hefur haslað sér völl á undanförnum árum sem alþjóðlegt vörumerki með sérstöðu í hönnunarheiminum. Stúdíóið er hugarfóstur arkitektastofunnar Case Design og er staðsett í Mumbai. Casegoods hefur einstakt hönnunar- og framleiðsluteymi og hefur tekið þátt í sýningum um heim allan.
Vörurnar frá Casegoods eru afrakstur góðra sambanda við iðnaðar- og handverksfólk síðustu tvo áratugi og eru framleiddar af, og í samvinnu við framúrskarandi framleiðendur. Oftar en ekki fjölskyldufyrirtæki sem eiga sér sögu yfir 40 kynslóðir með einstaka þekkingu og skilning á aðferðum og efnum.
Mumbai — Indland
— Stærð kalksteins: B104×H162×D84 mm
— Efni: Leir