Hér hefur Ystudio tekið einfaldan og hversdagslegan hlut og lyft honum upp í eitthvað eftirsóknarvert og eigulegt. Brassing reglustikan frá Ystudio er 15 cm löng og hönnuð til að passa fallega með ritföngunum frá merkinu.
Ystudio er hönnunarstofa frá Taívan sem stofnuð var árið 2012 af 廖宜賢 (Yi Liao) og 楊格 (Yanko). Þeir leggja mikið upp úr gildi einfaldleikans og ná að sameina taívanska hönnun og handverk á hátt sem fangar fagurfræðilega menningu þeirra. Þeir hanna fyrst og fremst ritföng sem eru sköpuð fyrir hversdagslega notkun og munu endast eigandanum út ævina og rúmlega það.
Vörurnar frá Ystudio eru flestar úr látúni og kopar og eru framleiddar í Taívan af handverksmönnum með áralanga reynslu í faginu.
Taívan
— Efni: Látún (e. brass)
— Stærð: 1×20×160 mm
Svarti litur reglustikunnar mun dvína með tíma og notkun og sýna gyllta lit látúnsins. Þetta eru þau „brassing“ áhrif sem línan dregur nafn sitt af og ber að njóta.