Yfirnáttúrulegur en um leið jarðbundinn ilmur. Innblásinn af Prag og elstu heimildum um súrefni, sem þá var nefnt „Aereo Nitro“. Aereo er afturhvarf, ilmur sem byggir á einbeitingu, ró og innri heilindum. Hann sprettur af þeirri sannfæringu að verðmæti okkar ráðist ekki af augum annarra heldur búi innra með okkur.
Samsetning ilmsins er unnin á afar nútímalegan máta og þróast á fíngerðan hátt með tímanum. Kjarninn er mjúkt, nánast áþreifanlegt cashmeran, þar sem steinefnakennd dýptin minnir á ylvolga mold eftir rigningu. Léttur keimur af bleikum pipar veitir birtu og tærleika, á meðan róandi myrra bindur ilminn með hreinum, næstum hugleiðslukenndum blæ.
Cashmeran, bleikur pipar, myrra
Prag, Tékkland
— Stærð: 50 ml
— Ilmvatnið hentar öllum kynjum.
— Spreyið á háls og úlnlið eftir þörfum.
— Haldið ilmvatninu frá augum, munni, börnum og dýrum.
Pigmentarium er fyrsta stjálfstæða ilmvatnshúsið í Tékklandi sem kynnti frumraun sína í Prag haustið 2018 með ilmvatni að nafni AD Libitum. Vörumerkið er undir sterkum áhrifum frá ungu kynslóðinni sem hefur tengsl við listheiminn ásamt lífsstíl Tékklands á fyrri hluta tuttugustu aldar. Ilmvatnssafn Pigmentarium stækkar ár frá ári og samanstendur af hágæða ilmum með áherslu á handverk, sjálfbærni og náið samstarf við lítil, að mestu staðbundin, fjölskyldurekin fyrirtæki.