0405 Flaska・Hringlótt
Glervörulínan 0405 frá Frama endurskapar hefðbundna glervöru með lífrænum formum og smáatriðum. Hver munur er lítið listaverk, handunnið á meistaralegan hátt af glerblásurum til að skapa áþreifanlega upplifun.
Flöskurnar í línunni eru innblásnar af kyrralífsmyndum Giorgio Morandi og hannaðar til daglegrar notkunar — fyrir drykki, afskorin blóm eða einfaldlega sem skrautmunur.
0405 vörulínan var hönnuð árið 2020 af Studio 0405 og er hver munur handgerður úr endingargóðu gleri. Vegna þessa er hver hlutur einstakur og því má vænta örlítils áferðarmunar á milli eintaka.
Frama er þverfaglegt sköpunarhús sem býr til vörur sem hvetja til núvitundar og örva skynfærin. Merkið leggur áherslu á náttúruleg efni, einföld form og gæði án málamiðlana — þannig nær það á einstakan hátt að tengja það huglæga við það praktíska sem skilar sér í beinskeittri fagurfræði.
Kaupmannahöfn, Danmörk
— Stærð: H18/Ø5,5 cm
— Rúmmál: 1150 ml
— Efni: Munnblásið gler
— Má fara í uppþvottavél (að hámarki 70°C)
— Flaskan er ekki hönnuð fyrir heita drykki.
— Þar sem um handgerðan hlut er að ræða, er hver flaska einstök í formi.