Amber・Champaca・Leather・Palo Santo
Cinnamon Projects var stofnað af Andrew Cinnamon og Charlie Stackhouse sem vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki innan skapandi greina að koma saman. Þeir hafa síðan þá framleitt hágæða ilmvötn og ilmvatnsolíur ásamt reykelsum og reykelsisstöndum sem innblásnir eru af siðum Kōdō (香道), reykelsisathafna Japans.
Frá þeim kemur ilmvatnsolían Easy Tiger, sem innblásin er af umbreytingunni sem tígrisdýrið táknar í Búddisma og leikur sér með andstæðar ilmnótur sem mynda sterka og ávanabindandi heild.
New York, USA
— Stærð: 9 ml
— Ilmvatnsolían hentar öllum kynjum.
— Berið á háls og úlnlið eftir þörfum.
— Haldið ilmvatnsolíunni frá augum, munni, börnum og dýrum.
Mikado | Hafnartorgi