Matcha-skál・Svört
Í gegnum aldirnar hefur sú japanska athöfn að útbúa te þekkt sem chadō (茶道 „The Way of Tea“) orðið að listgrein útaf fyrir sig. Því er ekki furða að matcha-skálarnar (茶碗 „Chawan“) sem notaðar eru í þær athafnir hafi sjálfar orðið að listmunum í gegnum tíðina.
Falleg matcha-skál, er einn mikilvægasti þáttur japönsku teathafnarinnar og er hún því oft talin einn tignarlegasti og mikilvægasti hlutur heimilisins.
Japan
Til að útbúa matcha skal hella sjóðandi vatni í teskálina og leyfa því að kólna örlítið. Þar næst er matcha-dufti bætt við með bambussleif. Með því að nota bambuspísk (茶筅 „Chasen“) skal þeyta teið kröftuglega fram og tilbaka með því að mynda „M“ í skálina þar til teið nær rjómakenndri froðu. Drekkist beint úr skálinni.
— Stærð: Ø108×60 mm
— Rúmmál: 180 ml
— Vinsamlegast athugið að þar sem skálarnar eru handgerðar mun vera örlítill blæbrigðamunur á milli eintaka.
Að eiga matcha skál krefst góðrar meðhöndlunar og þar sem hver skál er handgerð eru þessar skálar ekki hentugar fyrir örbylgjuofn, ofn eða uppþvottavél og ætti að þvo með mildri sápu og þurrka strax eftir notkun.