Í Manaslu, í 8163 metra hæð yfir sjávarmáli, vex sedrusviður í snæviþöktum fjallshlíðum Himalaya. Hann býr með jöklinum og ilmur hans hefur mótast af vindinum, ísköldum og hreinum. Vetrarlandslag Manaslu er ljóðrænt og óútreiknanlegt, eins og ilmurinn sjálfur. Toppur — Peppermint・Basil・Star AniseHjarta — Clary Sage・Cypress・Pine NeedlesGrunnur — Himalayan Cedarwood・Sandalwood・Ambrette Seeds Viðarkenndur og musky ilmur. París, Frakkland Upplýsingar — Stærð: 2 ml— 99% náttúruleg hráefni.— Ilmvatnið hentar öllum kynjum.— Spreyið á háls og úlnlið eftir þörfum.— Haldið ilmvatninu frá augum, munni, börnum og dýrum. Um hima jomo Í Himalajafjöllunum eru þúsundir stórkostlegra náttúruauðlinda, sem fullar eru af óvenjulegum plöntum og lyktareinkennum. Ilmvatnslína hima jomo er innblásin af náttúrufegurð Himalaya og jafnvæginu á milli ríkrar menningar, landslags og hefðum svæðisins.hima jomo var stofnað árið 2020 í París af vinahópi sem deilir sama áhuga á náttúru og menningu Himalaya. Nafn fyrirtækisins er samsetning tveggja orða sem eru vörumerkinu kær: „hima“ fyrir „Himalaya“ og „jomo“ sem þýðir „Heilög móðir“ á tíbetsku.Ilmvötn hima jomo eru innblásin af fjölbreyttu náttúrulegu vistkerfi Himalayafjallanna og eru handunnin af kostgæfni í Grasse í Frakklandi. Ilmvötnin innihalda sjaldgæf innihaldsefni sem finnast eingöngu í Himalayafjöllunum og taka þau sem bera ilmina í ferðalag til óbyggða þessa himneska svæðis. Ilmirnir eru gerðir úr 95–99% af náttúrulegum og lífrænum hráefnum sem hima jomo fær frá Maison Robertet, frönskum ilmframleiðanda sem hefur sérhæft sig í sjálfbærum og náttúrulegum hráefnum með fullan rekjanleika frá árinu 1850.Öll vörulínan er í endurvinnanlegum umbúðum og engar vörur hafa verið prófaðar á dýrum. hima jomo gera einnig sitt besta við að hafa sjálfbærni og verndun náttúrunnar að leiðarljósi og gefa 1 Evru af hverju seldu glasi til WWF sem berjast fyrir verndun Himalaya-svæðisins.
Mikado | Hafnartorgi