Genesis snertir við manni með frískleika sínum. Kjarni ilmvatnsins vísar til paradísar og frumsyndarinnar — upprunans. Genesis eða 1. Mósebók er rannsókn á sköpun, erfðasynd, réttlætingu og sátt; bókin um upphafið.
Fyrstu kynni ilmvatnsins birtast í lárviðarlaufum og aldehýðum. Í miðju þess taka björt járnurt, dalalilja og grænt epli við sem táknmyndir þess viðkvæma. Í grunntónunum ilmvatnsins má svo finna fíkjulauf, rósavið, moskus og ambroxan.
Toppur — Laurel・Aldehydes
Hjarta — Verbena・Lily of the valley・Green apple
Grunnur — Fig leaves・Rosewood・Musk・Amber
Pigmentarium er fyrsta stjálfstæða ilmvatnshúsið í Tékklandi sem kynnti frumraun sína í Prag haustið 2018 með Ad Libitum ilminum. Vörumerkið er undir sterkum áhrifum ungu kynslóðarinnar með tengsl við listheiminn og lífsstíl Tékklands á fyrri hluta tuttugustu aldar. Ilmvatnssafn Pigmentarium stækkar ár frá ári og samanstendur af hágæða ilmum með áherslu á handverk og sjálfbærni og náið samstarf við lítil, að mestu staðbundin, fjölskyldurekin fyrirtæki.
Prag, Tékkland
— Stærð: 2 ml
— Ilmvatnið hentar öllum kynjum.
— Spreyið á háls og úlnlið eftir þörfum.
— Haldið ilmvatninu frá augum, munni, börnum og dýrum.