Síðan á Muromachi-tímabili Japans (1336–1573) hefur Chikusendo 竹筌堂 framleitt hágæða píska til þess að blanda matcha. Þau hafa framleitt chasen fyrir fremstu temeistara Japans og eru ein af leiðandi framleiðendum chasen með yfir 550 ára sögu.
Chikusendou Chasen er handunninn af mikilli kunnáttu handverksmeistarans Kubo Kyosuke í Nara, Japan. Bambusrörið er skorið ítrekað með beittum, sérstökum hníf til að skera þræðina varlega út, 80 í heildina.
Chasen í þessum gæðaflokki eru ekki aðeins sterkari en fjöldaframleiddir pískar, heldur veita þeir einnig meiri sveigjanleika og gefa eftir við notkun svo þeir halda sér mun lengur.
Nara, Japan
— Stærð: 105×55 mm
— Efni: Takayama bambus
— Fyrir notkun skal leggja pískinn í bleyti í heitt vatn til að leyfa bambusnum að mýkjast. Eftir notkun skal svo skola hann vel og þurrka.
— Pískurinn er handgerður úr náttúrulegum bambus og því getur lögun, þykkt og litbrigði hans verið mismunandi á milli eintaka.