Pappírsreykelsi・Gjafabox・6 stk
Frá fæðingarstað japanskra reykelsa kemur ný leið til að njóta umbreytandi áhrifa ilms. HA KO pappírsreykelsin eru búin til úr japönskum washi-pappír og koma hér í fallegri viðaröskju með 6 mismunandi ilmum og keramikdiskur til að brenna þau í. Frumleg og einstök gjöf fyrir vini og vandamenn.
Í öskjunni eru 6 pappírslauf með sérvöldum ilmum, lítil filtmotta til að nota þegar kveikt er í þeim og keramikdiskur undir þau. Ilmirnir sem eru í öskjunni eru:
— No. 01 Spicy Jasmine: Stundum nefnd drottning blómalyktanna.
— No. 03 Elegant Citrus: Nokkrar tegundir sítrus sem skapa hefðbundinn japanskan ilm.
— No. 05 Smoky Cinnamon: Sætur og kryddaður ilmur sem skapar kyrrð og gott andrúmsloft.
— No. 06 White Floral: Létt og mjúk blanda af hvítum blómum,
— No. 07 Green Grass: Græn og jarðbundin lykt af mosa.
— No. 08 True Aqua: Hrein og björt lykt með nótum af Fleur de sel.
Sagan segir að reykelsishefð Japans hafi fæðst úr einu stykki af ilmandi agarviði sem rak á klettótta strönd Awaji-eyju á 6. öld. Enn þann dag í dag, þrátt fyrir breytingar í gegnum aldirnar, er Awaji enn miðpunktur fíns ilms í Japan.
Framleiðandi reykelsanna eru fagmenntaðir iðnmenn Koushou-do, en fyrirtækið var stofnað fyrir meira en 120 árum síðan. Þeir hafa í gegnum árin framleitt sum bestu reykelsa heims og tekið þátt í að þróa listform sem nefnist Kōdō (香道, „The Way of Fragrance„) og talin er ein af þremur fágunarlistum Japans ásamt Kadō (華道 „The Way of Flowers„) og Chadō (茶道, „The Way of Tea“).
Pappírsreykelsin eru nýjasta afurð Koushou-do en þau voru í þróun í 5 ár áður en þau voru loks tilbúin. Reykelsin unnu einnig Good Design Award verðlaunin árið 2019.
Awaji, Japan
Þegar kveikt er á reykelsinu skal blása strax á logann, leggja laufblaðið á filt brennslumottuna sem fylgir í kassanum og í keramikskálina. Einnig er hægt að njóta ilmblöndunnar í reykelsinu án þess að brenna það, en hún helst fersk í allt að 3 mánuði.
— Stærð: Hvert lauf er u.þ.b. 80×30 mm
— Efni: Washi-pappír
— Brennslutími: 5-7 minútur
— Sýnið varkárni við brennslu reykelsa, brennið á óeldfimu yfirborði og ekki án eftirlits.