Falleg kerti frá Takazawa Candles sem hefur frá árinu 1892 framleitt kerti í sátt við náttúru. Kassinn inniheldur 2 kerti sem framleidd eru í hefðbundnum japönskum stíl úr sumac vaxi (oft kallað Japan Wax eða 木蝋 Mokurō) og washi pappakveik.
Sumac vax er náttúrulegt jurtavax unnið úr berjum japansks sumac-trés. Vaxið hefur silkimjúka áferð og er oft otað í kertagerð, snyrtivörur og hefðbundið japanskt handverk. Vaxið brennur án þess að sóta og er umhverfisvænt og lífbrjótanlegt.
Takazawa Candle var stofnað árið 1892 í hafnarborginni Nanao, í Ishikawa í Japan og sker sig ekki aðeins út í gæðum heldur einnig í einstakri hönnun kertanna sem hafa tilvísanir í náttúruna og þær plöntur sem finnast í borginni.
Fyrirtækið notar afar sérstakan pappakveik sem gerður er samkvæmt uppskriftum frá 16. öld. Kveikurinn er búinn til með því að vefja þurrkuðum plöntum um holan streng af washi-pappír. Kertin eru hol að innan sem gerir það að verkum að súrefni leitar upp kertið og loginn verður stærri og bjartari.
Washi (和紙) er hefðbundinn japanskur pappír sem unninn er samkvæmt gömlum aðferðum af handverksmönnum með áralanga reynslu í faginu. Orðið washi er samsett úr japönsku orðunum „wa“, sem þýðir „japanskur“ og „shi“ sem þýðir „pappír“.
Hægt er að kaupa stjaka fyrir kertin hér.
Nanao, Ishikawa, Japan
— Stærð: Ø1,9×110 cmm
— Magn: 2 kerti
— Innihald: Sumac Wax / 木蝋 Mokurō
— Brennslutími: 130 min
— Sýnið varkárni við brennslu kerta og brennið ekki án eftirlits.