Værðarvoðin Mōfu er fyrsta varan sem framleidd er undir merkjum Mikado. Teppið er íslensk framleiðsla, úr 100% íslenskri ull, en nafnið er sótt í japanska tungu og þýðir einfaldlega teppi. Þannig breiðir teppið úr sér þvert yfir landamærin sem finna má í Mikado, milli japanskrar og skandinavískrar hönnunar.
Munstrið var hannað af Mikado og framleiðslan er í höndum Varma í Reykjavík. Efnisvalið felur í sér rækt við arfleifð íslensks handverks og gæði. Áreiðanleg, hlý, falleg – íslenska ullin er eðalefni sem hefur vitanlega veitt skjól og aukið notalegheitin hér á landi allt frá upphafi byggðar.
Mōfu hentar vel til að ylja sér jafnt á köldum vetrardögum sem og löngum sumarkvöldum; sem stofustáss eða í svefnherbergið.
Reykjavík, Ísland
— Stærð: 130×180 cm
— Efni: 100% íslensk ull
— Umhirða: Aðeins skal þvo teppið ef það verður mjög óhreint, annars getur verið gott að hengja það út um stund til að viðra það. Ef þvo á teppið skal aðeins þurrhreinsa það. Aldrei skal setja teppið í þurrkara.
— Teppið er ýft beggja vegna og er því einstaklega mjúkt viðkomu.
— Íslensk framleiðsla — af Varma fyrir Mikado.