Cordoba-kápan er gerð úr léttum en sterkum Cordoba-pappír. Fyrir skissu- og minnisbækur þar sem pappírsval er í fyrirrúmi, er viðeigandi að kápan sé einnig gerð úr pappír.
Kápan er með náttúrulegri áferð og hentar vel til þess að vernda bækurnar frá MD-Paper. Hægt er að nudda pappírinn í kápunni til þess að gefa henni veðrað útlit, sem gefur þeim ákveðinn karakter.
Midori hefur framleitt hágæða bréfsefni frá 1950 og er MD Paper línan stolt þeirra og yndi. Allt frá því að Midori framleiddi pappírinn fyrst á sjöunda áratug síðustu aldar hafa þau haft japönsku hugmyndafræðina „Kaizen“ að leiðarljósi, sem þýðir að þau leita stöðugt nýrra leiða til að bæta gæði vara sinna. Niðurstaða þessarar vinnu er pappír sem heldur lit sínum vel og frábært er að skrifa á, sérstaklega með blekpenna þar sem pappírinn heldur blekinu þannig að því blæði ekki á pappírnum.
Tokyo, Japan
— Stærð: A6, 105×148mm
— Efni: Cordoba-pappír