PVC-kápa til að vernda MD Paper skissu- og minnisbækurnar.
Kápan er úr PVC-efni sem verndar bækurnar en gefur þeim samt snyrtilegt og minimalískt yfirbragð. Efnið er aðeins 0,2 mm þykkt og er létt og sveigjanlegt en samt nógu sterkt til þess að vernda bækurnar fyrir rispum eða blettum. Á kápunni er einni pláss fyrir penna (allt að 10 mm í þvermál).
Midori hefur framleitt hágæða bréfsefni frá 1950 og er MD Paper línan stolt þeirra og yndi. Allt frá því að Midori framleiddi pappírinn fyrst á sjöunda áratug síðustu aldar hafa þau haft japönsku hugmyndafræðina „Kaizen“ að leiðarljósi, sem þýðir að þau leita stöðugt nýrra leiða til að bæta gæði vara sinna. Niðurstaða þessarar vinnu er pappír sem heldur lit sínum vel og frábært er að skrifa á, sérstaklega með blekpenna þar sem pappírinn heldur blekinu þannig að því blæði ekki á pappírnum.
Tokyo, Japan
— Stærð: A6, 105×148mm
— Efni: PVC (glært)