Kome-no-megumi merkir blessun hrísgrjónanna en hrísgrjón hafa verið grunnfæða Japans frá örófi alda. Kertin eru frá Takazawa Candles sem hefur frá árinu 1892 framleitt kerti í sátt við náttúru. Kassinn inniheldur 8 kerti sem framleidd eru í hefðbundnum japönskum stíl úr vaxi úr hrísgrjónaklíð og washi pappakveik.
Þau brenna í um 30 mínútur svo ljós þeirra gefur þér nægan tíma til að njóta kaffibolla eða hlusta á uppáhalds tónlistina þína. Eins konar tímamælir, en án þess að nokkur tímapressa fylgi.
Takazawa Candle var stofnað árið 1892 í hafnarborginni Nanao, í Ishikawa í Japan og sker sig ekki aðeins út í gæðum heldur einnig í einstakri hönnun kertanna sem hafa tilvísanir í náttúruna og þær plöntur sem finnast í borginni.
Fyrirtækið notar afar sérstakan pappakveik sem gerður er samkvæmt uppskriftum frá 16. öld. Kveikurinn er búinn til með því að vefja þurrkuðum plöntum um holan streng af washi-pappír. Kertin eru hol að innan sem gerir það að verkum að súrefni leitar upp kertið og loginn verður stærri og bjartari.
Washi (和紙) er hefðbundinn japanskur pappír sem unninn er samkvæmt gömlum aðferðum af handverksmönnum með áralanga reynslu í faginu. Orðið washi er samsett úr japönsku orðunum „wa“, sem þýðir „japanskur“ og „shi“ sem þýðir „pappír“.
Hægt er að kaupa stjaka fyrir kertin hér.
Nanao, Ishikawa, Japan
— Stærð: Ø1,3×70 cmm
— Magn: 8 kerti
— Innihald: 100% rice bran wax
— Brennslutími: 30 min
— Sýnið varkárni við brennslu kerta og brennið ekki án eftirlits.