Hver kassi inniheldur 30 reykelsi, hvert með hvatningu á borð við „Cheer Up!“ og „Take a Break!“ Kassinn inniheldur einnig málmklemmu til að brenna reykelsin í uppréttri stöðu.
Pappírsreykelsi 5・Smoky Comfort
Verð
4.690 kr
Verð
per
Njóttu ilmsins af Smoky Comfort reykelsinu frá HA KO, hlý blanda af kanil, negul, benzoin, ryunou (camphor) og amber.
Frá fæðingarstað japanskra reykelsa kemur ný leið til að njóta umbreytandi áhrifa ilms. HA KO pappírsreykelsin eru búin til úr japönskum washi-pappír og eru frumleg gjöf fyrir vini og vandamenn.
Sagan segir að reykelsishefð Japans hafi fæðst úr einu stykki af ilmandi agarviði sem rak á klettótta strönd Awaji-eyju á 6. öld. Enn þann dag í dag, þrátt fyrir breytingar í gegnum aldirnar, er Awaji enn miðpunktur fíns ilms í Japan.
Framleiðandi reykelsanna eru fagmenntaðir iðnmenn Koushou-do, en fyrirtækið var stofnað fyrir meira en 120 árum síðan. Þeir hafa í gegnum árin framleitt sum bestu reykelsa heims og tekið þátt í að þróa listform sem nefnist Kōdō (香道, „The Way of Fragrance“) og talin er ein af þremur fágunarlistum Japans ásamt Kadō (華道 „The Way of Flowers“) og Chadō (茶道, „The Way of Tea“).
Awaji, Japan
Festa skal meðfylgjandi málmklemmu neðst á reykelsið og kveikja síðan í lausa endanum. Blása skal strax á logann, en þannig að pappírsræman glói áfram. Síðan skal koma klemmunni fyrir á óeldfimu undirlagi.
— Stærð kassa: 100×43 mm
— Stærð reykelsis: 80×7 mm
— Fjöldi: 30 stk
— Efni: Washi-pappír, ilmefni, málmklemma
— Brennslutími: U.þ.b. 5 minútur
— Sýnið varkárni við brennslu reykelsa, brennið á óeldfimu yfirborði og ekki án eftirlits.
Mikado | Hafnartorgi