Reykelsi, sem einu sinni var dýrara en gull, er kjarninn í Encens 9 frá Le Labo. Ilmurinn er mildaður með hlýju amber og negull veitir honum skerpu.
Kertin frá Le Labo eru handgerð í Bandaríkunum með kraftmiklum ilmkjarnaolíum, sérsniðinni blöndu af sojavaxi og eru með náttúrulegan bómullarkveik — allt til þess að skapa sem besta ilmupplifun. Lestu miðann sem fylgir kertunum og ekki gleyma að snyrta kveikinn!
Grasse — New York
— Stærð: 245 g
— Tilvalið er að endurnýta glasið eftir notkun kertisins, en það átti einmitt fyrra líf sem kokteilglas.
— Allar vörur frá Le Labo eru án parabena og rotvarnarefna, eru vegan og hafa ekki verið prófaðar á dýrum.
Mikado | Hafnartorgi