Rivet hillan var hönnuð af Jonas Trampedach árið 2014.Hillan er jafnt fyrir augað sem og góður staður til þess að stilla upp hlutum.
Aðferðin við gerð hillunnar er byggð á sögulegu handbragði þar sem leiser-skornar álplötur sem eru hamraðar saman með ákveðinni tækni (e. riveting).
Hönnunin er samtal á milli handverks og iðnframleiðslu sem leyfir hrein- og heiðarleika efnisins að njóta sín sem best.
Frama er þverfaglegt sköpunarhús sem býr til vörur sem hvetja til núvitundar og örva skynfærin. Merkið leggur áherslu á náttúruleg efni, einföld form og gæði án málamiðlana — þannig nær það á einstakan hátt að tengja það huglæga við það praktíska sem skilar sér í beinskeittri fagurfræði.
Kaupmannahöfn, Danmörk
/ Stærð: H20,6×L87,6×D24,4 cm
/ Efni: Ómeðhöndlað ál
/ Auðvelt er að festa hilluna á vegg þar sem bakplatan er sér eining.
/ Vegna ómeðhöndlaðs áls sem varan er gerð úr, gætu rispur og náttúrulegar óreglur á yfirborðinu verið til staðar á skápnum frá upphafi.
Örlítill áferðarmunur getur verið á hillunum vegna handverksins. Ómeðhöndlað álið mun tjarna (e. patinate) með tímanum ásamt því að rispur og litabreytingar munu eiga sér stað. Í okkar augum er þetta fallegt ferli sem gefur hverjum hlut einstakt og persónulegt yfirbragð.
Hægt er að fræðast um framleiðsluferlið og efnisvalið hér.