Amber・Clove・Carnation・Patchouli
Cinnamon Projects var stofnað af Andrew Cinnamon og Charlie Stackhouse sem vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki innan skapandi greina að koma saman. Þeir hafa síðan þá framleitt hágæða ilmvötn og ilmvatnsolíur ásamt reykelsum og reykelsisstöndum sem innblásnir eru af siðum Kōdō 香道, reykelsisathafna Japans.
Frá þeim kemur ilmvatnsolían 11 PM, sem lýst er sem hlýrri, fágaðri og dularfullri. Hún er blönduð fyrir öll kyn og er úr hágæða hráefnum.
Toppur — Cardamom・Narcissus・Sicilian Bergamot
Hjarta — Carnation・Cassia・Clove
Grunnur — Amber・Peru Balsam・Patchouli
New York, USA
— Stærð: 9 ml
— Ilmvatnsolían hentar öllum kynjum.
— Berið á háls og úlnlið eftir þörfum.
— Haldið ilmvatnsolíunni frá augum, munni, börnum og dýrum.