{"product_id":"sulis-heavyweight-badsloppur-caper-chalk-xs-s","title":"Sulis Heavyweight baðsloppur・Caper\/Chalk・XS\/S","description":"\u003cp\u003eBaðsloppur frá BAINA úr extra þykkri og mjúkri bómull. Snið hans er afslappað og hentar öllum kynjum. Sloppurinn er framleiddur úr 450gsm bómull og kemur í stærð XS\/S. Nánari upplýsingar um stærðir má finna \u003ca rel=\"noopener\" href=\"https:\/\/www.shopbaina.com\/pages\/baina-towelling-size-guide\" target=\"_blank\"\u003ehér\u003c\/a\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBAINA framleiðir línu af nútímalegum bómullarhandklæðum sem \u003cspan\u003eeru unaðslega mjúk og framleidd úr 100% lífrænt vottaðri bómull í Portúgal. Líflegt mynstur þeirra talar sterkt við vörumerki BAINA, en þau \u003c\/span\u003eleitast við að endurvekja tengsl okkar við þá daglegu athöfn að baða sig og lyfta því hversdagslegum hlutum upp með nútímalegri nálgun, hágæða handverki og árstíðalausri nálgun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003ci\u003eÁstralía \/ Nýja-Sjáland\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eUpplýsingar\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e— \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eStærð: \u003c\/em\u003eXS\/S\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e— \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eEfni:\u003c\/em\u003e 100% GOTS-vottuð, lífræn bómull\u003cbr\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e \u003cspan\u003e— Þykkt\u003c\/span\u003e\u003cem\u003e:\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e 450 gsm\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e \u003cspan\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e— Þvottur\u003cem\u003e: \u003c\/em\u003eViðkvæmt þvottakerfi við 40–60°C\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eUm BAINA\u003cbr\u003e\n\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eVörurnar frá BAINA eru innblásnar af list, arkitektúr og litafræði og koma með ferskan blæ inn í hlutleysi baðherbergja. Merkið var stofnað árið 2019 af Bailey Meredith og Anna Fahey og er hannað í Antipodes, bæði í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVörur frá BAINA eru framleiddar í Portúgal úr GOTS-vottaðri bómull en Portúgal er þekkt fyrir hágæða vefnaðarvöru og þar má finna nokkrar af bestu og rótgrónustu handklæðaverksmiðjum heims.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKostir þess að vinna með lífræna bómull eru þeir að hún er mýkri og endingarbetri en önnur bómull, auk þess að vera lífbrjótanleg. Trefjar hennar verða einnig sterkari þegar þær blotna sem gerir hana afar hentuga við framleiðslu handklæða. Lífræn bómull er einnig valin vegna mikillar \u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan\u003erakadrægni\u003c\/span\u003e auk minni umhverfisáhrifa.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVörurnar frá BAINA eru framleiddar með tveggja laga bómullarþráðum. Í samanburði við eins laga bómullarþræði, sem algengir eru í hefðbundnum handklæðum, styrkir þessi tækni heilleika garnsins, lengir líftíma handklæðisins til muna, eykur rakadrægni og minnkar hnökra. Þetta auka smáatriði í vefnaðarferlinu dregur raka að botni varanna, frekar en að ýta honum til eins og í mörgum vörum úr handklæðaefni.\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eUmhirða\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003e\u003c\/span\u003eÁður en byrjað er að nota vörurnar frá BAINA mælum við með því að þvo þær einu sinni á köldu eða við lágt hitastig (40°). Mælt er með því að nota náttúrulegt þvottaefni og forðast mýkingarefni. Þó að mýkingarefni geti gefið mjúka tilfinningu í upphafi, skilur það með tímanum eftir sig leyfar sem safnast upp á yfirborði bómullarinnar og hindrar svo gleypni efnisins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞurrka skal sloppana á snúru í skugga, en til að fá sem besta mýkt má setja þá í þurrkara við lágan hita í smá stund áður en þeir eru hengdir á snúru, það mun hreyfa við bómullartrefjunum og koma lofti í þær.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e \u003cspan\u003eBAINA hannar vörur sínar með varanleika í huga, og með því að fylgja \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/www.shopbaina.com\/pages\/baina-towelling-care-guide\"\u003eleiðbeiningum\u003c\/a\u003e\u003cspan\u003e þeirra um umhirðu, endast þau enn lengur \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003esem\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e lágmarkar áhrif á umhverfið.\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"BAINA","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67812917969066,"sku":"BAI-ROBE-CC-XSS","price":35990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0508\/5498\/5898\/files\/Mikado_Baina_Badsloppur_Bath_Robe_Caper_Chalk_1_fb47f603-f8cb-414b-a60b-6bec8e538a5e.jpg?v=1793710662","url":"https:\/\/mikado.store\/products\/sulis-heavyweight-badsloppur-caper-chalk-xs-s","provider":"Mikado","version":"1.0","type":"link"}