Lífrænt Matcha・Jun Premium
Útsöluverð
Verð
5.490 kr
Verð
Verð
per
Lífrænt Jun Premium Matcha frá Morihata í þeirra hæsta gæðaflokki sem hentugt væri til notkunar í chadō (茶道), teathöfnum Japans.
Matcha er fínmalað te unnið úr telaufum sem skyggð eru frá sólinni fyrir uppskeru. Þetta ferli þéttir blaðgrænu og eykur önnur næringarefni í laufunum og skilar fallegum og djúpum grænum lit með auknum heilsufarslegum ávinningi.
Matcha tein frá Morihata eru „Ceremonial Grade“ og eru möluð í fínt duft með steini til að draga úr oxun. Þar sem mölun með steini getur komið hita í laufin er það gert afar hægt, eða um 30g á klukkustund.
Þetta skilar Matcha með áköfum grænum lit, sætum ilmi og sterkum bragði. Tein frá Morihata eru vottuð lífræn af JONA (Japan Organic & Natural Foods Association) og USDA stöðlum og hafa verið prófuð fyrir geislun.
Leiðbeiningar hvernig útbúa skal Matcha fylgja á ílátinu.
Almennar upplýsingar
/ Innihald: Grænt te
/ Magn: 30g
/Geymist á svölum og dimmum stað. Notist innan 6 mánaða frá opnun fyrir bestu gæði.
Uji, Japan