{"product_id":"kome-no-megumi-kerti","title":"Kome-no-megumi・Kerti","description":"\u003cp data-end=\"264\" data-start=\"78\"\u003eKome-no-megumi merkir \u003cem data-end=\"127\" data-start=\"104\"\u003eblessun hrísgrjónanna \u003c\/em\u003een hrísgrjón hafa verið grunnfæða Japans frá örófi alda. Kertin eru frá\u003ci\u003e Takazawa Candles\u003c\/i\u003e\u003ci\u003e \u003c\/i\u003esem hefur frá árinu 1892 framleitt kerti í sátt við náttúru. Kassinn inniheldur\u003ci\u003e 8\u003c\/i\u003e kerti sem framleidd eru í hefðbundnum japönskum stíl úr vaxi úr hrísgrjónaklíð og \u003ci\u003ewashi\u003c\/i\u003e pappakveik. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-end=\"264\" data-start=\"78\"\u003eÞau brenna í um 30 mínútur svo ljós þeirra gefur þér nægan tíma til að njóta kaffibolla eða hlusta á uppáhalds tónlistina þína. Eins konar tímamælir, en án þess að nokkur tímapressa fylgi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eTakazawa Candle\u003c\/i\u003e var stofnað árið 1892 í hafnarborginni Nanao, í Ishikawa í Japan og sker sig ekki aðeins út í gæðum heldur einnig í einstakri hönnun kertanna sem hafa tilvísanir í náttúruna og þær plöntur sem finnast í borginni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cimg\u003eFyrirtækið notar afar sérstakan pappakveik sem gerður er samkvæmt uppskriftum frá 16. öld. Kveikurinn er búinn til með því að vefja þurrkuðum plöntum um holan streng af washi-pappír. Kertin eru hol að innan sem gerir það að verkum að súrefni leitar upp kertið og loginn verður stærri og bjartari.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eWashi\u003c\/i\u003e (和紙) er hefðbundinn japanskur pappír sem unninn er samkvæmt gömlum aðferðum af handverksmönnum með áralanga reynslu í faginu. Orðið \u003ci\u003ewashi \u003c\/i\u003eer samsett úr japönsku orðunum „wa“, sem þýðir „japanskur“ og „shi“ sem þýðir „pappír“.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHægt er að kaupa stjaka fyrir kertin \u003ca href=\"https:\/\/mikado.store\/collections\/kerti\/products\/kertastjaki-steypujarn\" target=\"_blank\"\u003ehér\u003c\/a\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eNanao, Ishikawa, Japan\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eUpplýsingar\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003e—\u003ci\u003e Stærð:\u003c\/i\u003e \u003cspan\u003eØ1,3×70 cmm\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e— \u003cem\u003eMagn:\u003c\/em\u003e 8 kerti \u003cbr\u003e\u003cspan\u003e— \u003cem\u003eInnihald:\u003c\/em\u003e 100% rice bran wax\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e— \u003cem\u003eBrennslutími:\u003c\/em\u003e 30 min\u003cbr\u003e\u003cspan\u003e—\u003ci\u003e \u003c\/i\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eSýnið varkárni við brennslu kerta og brennið ekki án eftirlits.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Takazawa Candles","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47887176925354,"sku":"SAI-TAK-KOME","price":7990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0508\/5498\/5898\/files\/Mikado_Takazawa_Kome-No-Megumi_Kerti_Candles_cf332861-7581-4649-abc6-6e794459aaea.jpg?v=1768413447","url":"https:\/\/mikado.store\/products\/kome-no-megumi-kerti","provider":"Mikado","version":"1.0","type":"link"}