Fallegur dúkur eftir fata- og textílhönnuðinn Sigmund Pál Freysteinsson. Dúkurinn er úr 100% handspunni og handofinni bómull frá Laos. Munstrið er unnið með japanskri stensillitun þar sem stensilinn er fyrst skorinn í höndunum úr japönskum pappír og í framhaldinu notað náttúruleg aðferð til að lita textílinn. Dúkurinn er litaður með íslenskum skófum en í aðferðinni felst mikil nákvæmis vinna sem skapar einstök blæbrigði sem ekki er hægt að leika eftir með öðrum hætti.
Sigmundur Páll Freysteinsson er fata- og textílhönnuður sem leggur mikla áherslu á handverk og sérhæfir sig í náttúrulegum litunaraðferðum. Sigmundur útskrifaðist úr fatahönnun frá Listaháskóla Íslands vorið 2019 og stundaði síðan framhaldsnám í hefðbundnum japönskum textílaðferðum í Kyoto Seika University. Sigmundur flutti heim frá Kyoto vorið 2023 og starfar nú í Reykjavík.
Reykjavík, Ísland
— Stærð: ~76×38 cm
— Efni: 100% bómull frá Laos, litað með náttúrulegri japanskri litunaraðferð Kakaishibu.
Hver munur frá Sigmundi er handgerður og því einstakur og smávægilegur lita-, áferðar og stærðarmunur gæti verið á milli hluta.
Viðkvæmt þvottakerfi við 30°C. Ekki er ráðlagt að nota mýkingarefni né klór, aðeins lítið magn af þvottadufti. Má ekki fara í þurrkara.