Fallegar servíettur úr hör frá Lapuan Kankurit sem setja fallegan svip á veisluborðið eða einfaldlega til að nota með morgunmatnum.
Servíetturnar eru gerðar úr 100% þvegnu höri sem er fallegt og afslappað, mjúkt og auðvelt að sjá um. Þvegið hör þarf ekki endilega að strauja heldur þykir fallegt að leyfa þeim lífrænu eiginleikum sem efnið bíður upp á að njóta sín.
Hörið sem notast eru við í servíettunum er vistvænt, ræktað í Normandí í norðurhluta Frakklands og er 100% rekjanlegt, Masters of Linen hörgarn. Allt garn sem notað er í servíetturnar er spunnið og litað í Evrópu samkvæmt REACH reglugerðum og er ÖKO-TEX vottað.
Stefna Lapuan Kankurit er að bera ábyrgð á allri framleiðslu, frá garni til tilbúinna vara. Meginhluti allrar framleiðslu fyrirtækisins er í verksmiðju þeirra í Lapua, að undanskildum parti saumavinnunnar sem fer fram í dótturfyrirtæki þeirra í Litháen.
Lapuan Kankurit var stofnað árið 1973 og framleiðir fjölhæfan innanhúss-, eldhús- og baðtextíl úr hreinum náttúrulegum efnum í verksmiðju sinni í Finnlandi. Fyrirtækið metur ekki aðeins góða hönnun heldur einnig sjálfbæra þróun og rekjanleika efna. Lapuan Kankurit er eina finnska textílverksmiðjan sem hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá inngöngu í samtök The European Masters of Linen.
Lapua, Finnland
— Stærð: 470×470 mm
— Efni: 100% Masters of Linen hör
Viðkvæmt þvottakerfi við 40–60°C í miklu vatni. Ekki er ráðlagt að nota mýkingarefni né klór, aðeins lítið magn af þvottadufti. Má ekki fara í þurrkara.
Gott er að móta servíettuna aftur á meðan hún er rök. Hörtrefjar geta losnað af vörunni á meðan þvotti stendur, það er eðlilegt við fyrstu þvotta. Einnig er gott að hafa í huga að litur náttúrulegs hörs verður ljósari við þvott. Strauja skal við vægan hita.