Holocene No. 1 olíulampi eftir Ilse Crawford fyrir Wästberg.
Ilse Crawford er hönnuður, fræðikona og stofnandi Studioilse. Ásamt þverfaglegu teymi sínu í London, lætur hún lífsspeki sína lifna við. Þetta þýðir að skapa umhverfi þar sem mönnum líður vel; almenningsrými sem fær fólki til að líða eins og heima hjá sér og íbúðir sem virka fyrir fólkið sem þar býr. Þetta þýðir einnig að hanna húsgögn og vörur sem fá fólk til að staldra við og efla athafnir í sínu daglega lífi.
Helsingborg, Svíþjóð
— Stærð: Ø150×30 mm
— Efni: Látún (e. brass)
Nota skal hefðbundna lampaolíu í lampann sem fæst á bensínstöðvum eða í byggingavöruverslunum. Olía fylgir ekki. Nota skal 50 ml af olíu þegar fyllt er á lampann en gott er að vita að 2 ltr. af olíu ættu að endast í um 140–150 klst.
Bómullarkveikur fylgir lampanum og við rétta notkun ætti hann að brenna um 6–12 mm á hverja 2 ltr. af lampaolíu. Aldrei skal brenna þurran kveik, alltaf þarf að tryggja að hann sé blautur í gegn af olíu. Ef lampinn myndar reyk við notkun er það vegna þess að kveikurinn er og hátt uppi, færa skal kveikinn varlega neðar þar til reykurinn hættir. Fyrir hverja notkun er best að snyrta af kveiknum með skærum til að tryggja að hann brenni jafnt.
Ólakkað látún mun tjarna með tíma og notkun, það er algjörlega skaðlaust. Í okkar augum er þetta fallegt ferli sem gefur hverjum hlut einstakt og persónulegt yfirbragð en ef eigandinn kýs að halda í upprunalegan gljáa er einfaldlega hægt að þurrka af hlutnum með koparhreinsi.